Fotbolti.net
22.11.24 - 15:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Valgeir Valgeirs í Breiðablik (Staðfest)

Valgeir Valgeirsson.

Valgeir Valgeirsson.

Canon

Mynd: Breiðablik

Breiðablik hefur staðfest að Valgeir Valgeirsson sé genginn í raðir félagsins. Hann lék síðast með Örebro í Svíþjóð en er uppalinn hjá HK, nágrönnum Blika.

Fótbolti.net sagði frá því fyrst í gær að Valgeir væri að ganga í raðir Breiðabliks. Á endanum stóð valið á milli Blika og Víkings. Samningur Valgeirs við Blika gildir til 2028.
Valgeir verður leikmaður Breiðabliks
TENGT EFNI

Valgeir verður leikmaður Breiðabliks

Hann er uppalinn í HK og hélt til Svíþjóðar um sumarið 2022 og var því í tvö og hálft tímabil úti. Örebro var allan þann tíma í næstefstu deild Svíþjóðar.

Valgeir, sem er 22 ára, lék á kantinum hjá HK en hefur að mestu spilað sem bakvörður úti í Svíþjóð og með U21 landsliðinu.

Valgeir var árið 2022, áður en hann hélt í atvinnumennsku, sterklega orðaður við Breiðablik. Hann á að baki 35 leiki fyrir yngri landsliðin, þar af ellefu fyrir U21 landsliðið sem hann gekk upp úr í síðasta mánuði.

Íslandsmeistararnir eru mjög virkir á markaðnum þessa dagana því félagið tilkynnti um endurkomu Ágústs Orra Þorsteinssonar til félagsins í gær og félagið er einnig að kaupa Óla Val Ómarsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.