Fotbolti.net
25.03.20 - 16:05
Magnús Már Einarsson

Pedro fer frá Chelsea í sumar

Pedro fer frá Chelsea í sumar
Canon

Mynd: Getty Images

Spænski kantmaðurinn Pedro hefur staðfest að hann muni yfirgefa herbúðir Chelsea í sumar.

Hinn 32 ára gamli Pedro verður samningslaus í sumar og þá mun hann kveðja Chelsea eftir fimm ára dvöl hjá félaginu.

Pedro vill þó lítið ræða framtíð sína núna en hann segir að hugur sinn sé hjá þeim sem eru að glíma við kórónaveiruna.
„Ég ætla að rifta samningi mínum en það er ekki mikilvægast núna og ég er ekki að eyða tíma í að hugsa um þetta," sagði Pedro.

„Mikilvægast er að allir sýni samheldni. Hvað sem gerist varðandi framtíð mína er ekki mikilvægt núna því að við vitum ekki einu sinni hvenær við snúum aftur til æfinga."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.