Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
Glódís eftir sögulegan leik: Veit það nú ekki alveg
Karólína Lea: Ég er eins og einhver stolt mamma þegar ég sé hana
Linda Líf eftir fraumraunina: Geggjað að fyrsti landsleikurinn hafi verið sigur
Cecilía: Ég er vön þessu stundum úti
Thelma Karen: Vantaði helminginn af vinkonunum
Alexandra: Alltaf gaman í þau fáu skipti sem það gerist
Steini vonsvikinn: Þetta er að gerast annars staðar
Sandra María: Hún getur allt sem hún vill
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
Sextán ára hetja KR - „Er það ekki sem fólkið vill?“
   mið 25. mars 2026 19:18
Elvar Geir Magnússon
Toronto
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Eimskip
Aron Einar segist hafa fundið fyrir öryggi í Katar þrátt fyrir ástandið.
Aron Einar segist hafa fundið fyrir öryggi í Katar þrátt fyrir ástandið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Doha, höfuðborg Katar.
Doha, höfuðborg Katar.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Aron er í landsliðsverkefni í Kanada.
Aron er í landsliðsverkefni í Kanada.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson segist hafa fundist hann öruggur í Katar þrátt fyrir átökin sem ríkja í Mið-Austurlöndum. Aron hefur spilað í Katar síðan 2019 og er nú hjá Al-Gharafa.

Katar varð fyrir írönskum dróna- og flugskeytaárásum og flúði Aron landið ásamt fjölskyldu sinni. Hann sneri svo aftur til Katar fyrr í þessum mánuði.

„Það hefur verið mikil óvissa. Mér hefur samt alltaf liðið eins og ég sé óhultur, Katar hefur gert virkilega vel í að láta landsmönnum finnast þeir öruggir. Þeir hafa staðið sig hrikalega vel í því," segir Aron við Fótbolta.net.

„Ríkisstjórnin og allir í kring hafa staðið sig frábærlega í að láta landsmönnum líða vel. En óvissan er mikil og það er óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar. En síðustu daga hefur komið ró á þetta og ekki verið neitt síðustu fimm daga. Vonandi fara menn að semja og klára þetta. Skólarnir eru farnir að opna og þetta hefur róast mikið, það verður gott að fá fjölskylduna aftur út."

„Maður fylgir bara fyrirmælum og þau hafa verið góð. Maður veit hvað er í gangi og hvað skal gera ef eitthvað gerist."

Aron fann þó vel fyrir því að hans nánustu vinir og ættingjar höfðu áhyggjur af öryggi hans.

„100%. Það er mjög eðlilegt. Fjölskyldan er heima á Íslandi og við erum blessunarlega ekki vön því að vera í þessu ástandi. Maður fann fyrir áhyggjum og hræðslu um mann sjálfan en ég hef sagt þeim að ég sé öruggur á því svæði þar sem ég hef verið," segir Aron.

Tók rúmlega tvo daga að ferðast frá Katar til Kanada
Innan vallarins hefur Aron, sem verður 37 ára í næsta mánuði, verið í stóru hlutverki hjá Al-Gharafa.

„Ég hef verið að spila mikið og gengur vel. Það er bara áfram með það og vonandi fær maður áframhaldandi samning," segir Aron sem setur stefnuna á að vera áfram úti í Katar.

Aron ræddi við Fótbolta.net í Toronto í Kanada en þangað er hann mættur með íslenska landsliðinu sem leikur vináttulandsleik gegn Kanada á laugardag og svo Haítí á þriðjudag. Hann lagði á sig langt og strangt ferðalag í leikinn.

Samtals tók ferðalagið um tvo og hálfan dag en þar spilaði inn í að flugi til Íslands var aflýst og hann festist í London.

„Ég náði svo einum degi með krökkunum og konunni heima á Íslandi áður en maður hélt hingað til Toronto," segir Aron.

Þurfum að fara að ná í úrslit
Aron telur að þessi gluggi sé mikilvægur fyrir íslenska landsliðið uppá framhaldið að gera en seinna á árinu spilar liðið í Þjóðadeildinni. Hann segir að nú sé kominn tími á að skila úrslitum í hús.

„Þetta eru flottir æfingaleikir gegn liðum sem eru að búa sig undir HM í sumar. Þetta eru flott lið sem við erum að fara að kljást við. Eins og 'coach' er búinn að tala um þá þurfum við núna að fara að ná í úrslit þrátt fyrir að þetta séu æfingaleikir. Þjáningin verður að vera þess virði að við séum búnir að læra. Við þurfum að ná í úrslit á þessu ári, svo einfalt er það," segir Aron.

„Það er margt sem við höfum verið að fara yfir, það er gott að koma saman og slípa allt saman."

„Það eru einhver meiðsli hjá Kanada og þá vilja aðrir grípa tækifærið. Leikurinn gegn Kanada verður erfiður. Þetta er flott lið, pressa hátt og það er mikil orka. Þetta verður barátta og tempó. Við verðum búnir undir það.

Hægt er að sjá viðtalið við Aron í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar tjáir hann sig meðal annars um vangaveltur um mögulega endurkomu í Þór og að Gylfi Þór Sigurðsson sé mættur aftur í landsliðshópinn.
Slapp
banner
banner