Fotbolti.net
25.03.26 - 18:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fór frá Íslandi í hlýjan faðm Alan Shearer og Ian Wright

Hassan Jalloh.

Hassan Jalloh.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Hassan Jalloh er leikmaður sem fótboltaaðdáendur á Íslandi kannast vel við.

Jalloh er kantmaður sem kom hingað til lands og spilaði með HK frá 2022 til 2023. Hann fór svo í Grindavík og spilaði meira að segja nokkra leiki með Dalvík/Reyni.
Byrjaði berfættur í drullunni en eltir núna draum sinn á Íslandi
TENGT EFNI

Byrjaði berfættur í drullunni en eltir núna draum sinn á Íslandi

Hans síðustu leikir á Íslandi voru sumarið 2024 en núna er hann að gera athyglisverða hluti á Englandi.

Jalloh er nefnilega orðinn hluti af Baller League í Bretlandi.

Baller League er ný tegund fótboltadeildar sem hefur orðið vinsæl í Bretlandi, Þýskalandi og Spáni. Í þessum deildum er spilað sex á móti sex innanhúss í hraðskreiðu og stuttu leikformi. Liðin sem keppa í þessari deild í Bretlandi er stýrt af þekktum einstaklingum eins og fyrrum leikmönnum, áhrifavöldum og öðru frægu fólki. Leikirnir eru sýndir í sjónvarpi og á netinu.

Í Baller League eru liðin skipuð blöndu af fyrrum atvinnumönnum, leikmönnum úr neðri deildum og ungum leikmönnum sem vilja koma sér á framfæri. Þetta gæti verið góður stökkpallur fyrir leikmenn sem vilja vekja á sér athygli.

Jalloh, sem hefur spilað í Ástralíu og Englandi eftir að hann fór frá Íslandi, er í liði sem er stýrt af Alan Shearer og Ian Wright, tveimur mestu markaskorurum í sögu enska boltans. Jalloh hefur spilað einn leik með liðinu sem ber heitið Wembley Rangers AFC.

Hægt er að fara á síðu liðsins með því að smella hérna.

Á meðal annarra stjóra í þessari deild eru Micah Richards, Idris Elba og Mark Goldbridge.

Shearer er markahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Shearer er markahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Canon

Mynd: Visitor

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.