Ísland spilar fyrsta leikinn á endurbættum HM leikvangi Toronto

Sautján þúsund sætum hefur verið bætt við leikvanginn.

Mynd: FIFA World Cup 26 Toronto

Sautján þúsund sætum hefur verið bætt við leikvanginn.

Mynd: FIFA World Cup 26 Toronto

Hann mun ganga undir nafninu Toronto leikvangurinn á HM þar sem ekki er notast við nöfn styrktaraðila. Sex leikir á mótinu munu fara fram á vellinum.
Fyrsti leikurinn á vellinum eftir endurbætur verður vináttulandsleikur Kanada og Íslands sem verður á laugardaginn, klukkan 17 að staðartíma.

Vel dúðaðir landsliðsmenn við æfingar í Toronto
Önnur bráðabirgðastúkan er risastór og er fyrir aftan annað markið en hún hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum þar sem hún þykir ansi ógnvekjandi. En að sjálfsögðu er farið eftir öllum ítrustu öryggiskröfum.
Það er ýmislegt annað sem hefur verið endurnýjað á leikvangnum og þá ekki til bráðabirgða; settir hafa verið upp stórir LED skjáir, nýtt hljóðkerfi, endurbætt undirlag á vellinum og betri aðstaða fyrir leikmenn og áhorfendur.
Fyrsti leikur Kanada á HM þann 12. júní, mögulega gegn Ítalíu, verður spilaður á vellinum sem lýkur svo þátttöku sinni með því að hýsa leik í 32-liða úrslitum þann 2. júlí.
The City of Toronto and the MLSE are unveiling the new #BMOField ahead of the #WorldCup2026, and Now Toronto is here to get a first look into the new stadium. Stay tuned! ???? #Toronto pic.twitter.com/ioiczxxFLn
— Now Toronto (@nowtoronto) March 24, 2026
The transformation is real.
— FIFA World Cup 26 Toronto (@FWC26Toronto) March 24, 2026
? More capacity
? Upgraded AV & broadcast tech
? Next-level fan experience
Think massive LED screens, better Wi-Fi, modern sound, and premium lounges.
Toronto is set. Are you ready? #WeAreToronto pic.twitter.com/xHfTab58Ax
Crazy seating at BMO field… These seats will cost thousands during the World Cup this summer ???????????? pic.twitter.com/BhNJFFAYhV
— RTN (@RTNToronto) March 16, 2026




