Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
banner
   lau 25. september 2021 17:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hallgrímur Mar: Sorglegt á þessu augnabliki að eiga svona leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Tilfinningin er ömurleg, við ætluðum okkur sigur í dag," sagði Hallgrímur Mar Steingrímsson leikmaður KA eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn FH í dag.

Lestu um leikinn: KA 2 -  2 FH

KA endar í 4. sæti deildarinnar en með sigri hefði liðið endað í 3. sæti sem gæti gefið evrópusæti.

„Vildum halda þessu evrópusæti, þetta er reyndar ekkert evrópusæti ennþá, Víkingur þarf að vinna bikarinn en auðvitað ætluðum við að halda í vonina með að taka sigur í dag en við vorum ekki alveg nógu góðir því miður," sagði Hallgrímur.

Hann var gríðarlega svekktur hvernig liðið mætti í leikinn þegar svona mikið er undir.

„Mér fannst við vera á eftir þeim í öllum atriðum. Þeir eru með unga og ferska stráka sem leggja sig fram og eru góðir í fótbolta finnst mér. Auðvitað þegar það er svona mikið undir þá eigum við að mæta sterkari til leiks, sorglegt á þessu augnabliki að eiga svona leik."

Hallgrímur gat lítið sagt þegar hann var spurður út í frammistöðu liðsins á tímabilinu.

„Það er bara búið að vera gott, erum með 40 stig, það er ágætt en ég nenni bara ekki að tala um það núna því miður," sagði Hallgrímur að lokum.
Slapp