Fotbolti.net
26.03.26 - 16:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sá gamla góða Arnór mæta aftur - „Alltaf verið rosalega góður í fótbolta"

Sá gamla góða Arnór mæta aftur - „Alltaf verið rosalega góður í fótbolta"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Tristan Guðjohnsen (2006) er í byrjunarliði U21 landsliðsins sem mætir Eistlandi í undankeppni EM í dag. Leikurinn hefst klukkan 16:30 og er Daníel að spila sinn fyrsta leik í þessum aldursflokki.

Daníel er leikmaður Malmö og var í viðtali við Fótbolta.net í gær spurður út í liðsfélaga sinn, Arnór Sigurðsson. Arnór er mættur aftur á fullt eftir að meiðsli settu stórt strik í reikninginn á síðasta tímabili.
Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri
TENGT EFNI

Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri

„Það er ógeðslega gott sjá að hann er kominn í gang. Maður sá um leið og hann kom úr jólafríinu að þetta var einhver nýr Arnór sem maður sá og það var mjög gaman að sjá gamla góða Arnór sem hefur alltaf verið rosalega góður í fótbolta. Ég er mjög ánægður fyrir hans hönd," sagði Daníel Tristan.

Arnór er í A-landsliðshópnum fyrir leikina gegn Kanada og Haítí.

Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.