26.09.26 - 18:46
Kári Snorrason
Daníel Leó: Kannski á maður að gera betur
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland gerði aðeins jafntefli gegn Eistlandi í fyrsta leik sínum í C-deild Þjóðadeildarinnar í dag. Slæm byrjun Íslands í riðlinum og frammistaðan vonbrigði.
Daníel Leó Grétarsson kom í viðtal við Fótbolta.net eftir leik. Er tilfinningin eins og eftir tapleik?
„Mögulega, við vorum á heimavelli og ætluðum að sýna hversu góðir við erum. Við ætluðum okkur þrjú stig en vonbrigði að það tókst ekki," segir Daníel.

Lestu um leikinn: Ísland 1 - 1 Eistland
„Við spiluðum kannski upp á þeirra styrkleika. Við vorum óþolinmóðir. Við náðum flottum spilköflum en eigum að gera betur."
Daníel Leó var í Maksim Paskotsi sem skoraði jöfnunarmark Eista en náði ekki að koma í veg fyrir mark.
„Ég er með hann þarna, boltinn tekur smá dýfu og hann er á undan að setja hausinn. Við sköllum saman eftir að hann skallaði boltann. Það er erfitt að bregðast svona fljótt við en kannski á maður að gera betur."
Daníel Leó fékk sárabindi um höfuðið eftir að Eistar jöfnuðu.
„Smá skurður en ég verð klár í næsta leik. Það er gott að fá leik snemma eftir vonbrigði.