26.09.26 - 19:17
Kári Snorrason
Ísak Bergmann: Skil pirringinn en mér gæti ekki verið meira sama
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Þetta var erfiður leikur, Eistarnir gerðu þetta vel. Það er erfitt að brjóta niður lið, sérstaklega í landsliðsfótbolta. Maður sá það þegar Spánn mæti Grænhöfðaeyjum á HM í sumar,“ sagði Ísak Bergmann Jóhannesson eftir 1-1 jafntefli Íslands gegn Eistlandi í C-deild Þjóðadeildarinnar fyrr í dag.
Íslenska þjóðin hefur látið vel í sér heyra á samfélagsmiðlum eftir leikinn og var Ísak spurður hvort að hann skilji pirring stuðningsmanna.
Íslenska þjóðin hefur látið vel í sér heyra á samfélagsmiðlum eftir leikinn og var Ísak spurður hvort að hann skilji pirring stuðningsmanna.

TENGT EFNI
Þjóðin reið á X - Arnar fær að heyra það
„Já, algjörlega en mér gæti ekki verið meira sama. Fólk út í bæ má segja það sem það vill en alþjóðafótbolti er erfiður. Það er erfitt að brjóta niður varnir andstæðinganna. Fyrir ári síðan unnum við (Aserbaísjan) 5-0 en núna endar þetta 1-1.
Fótbolti er stundum erfiður, sérstaklega þegar lið liggja niðri. Ég skil pirringinn auðvitað en við þurfum að vera inni í okkar búbblu, setja einbeitinguna á næsta leik og reyna að gera betur,“ sagði Ísak.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.