Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
   fös 27. mars 2026 18:22
Elvar Geir Magnússon
Toronto
Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
Allir í hópnum leikfærir fyrir morgundaginn
Eimskip
Jesse Marsch landsliðsþjálfari Kanada og Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands.
Jesse Marsch landsliðsþjálfari Kanada og Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands.
Mynd: KSÍ
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Það verður gaman að kljást við Kanadamenn og upplifa þeirra stemningu," segir Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari. Kanada og Ísland mætast á morgun klukkan 17:00 að íslenskum tíma.

Íslenska liðið æfði á keppnisvellinum í Toronto í dag og allir tóku þátt. Arnar segir að allir séu leikfærir og í góðu standi, æfingar hafi gengið vel.

„Við ætlum að reyna að fylgja því eftir sem við gerðum vel á síðasta ári. Við höfum farið mikið í það á æfingum og fundum hvað fór úrskeiðis svo strákarnir skilji betur hvað smáatriðin skipta miklu máli á þessu getustigi," segir Arnar.

„Þetta gefur okkur tíma til að æfa okkur fyrir gluggann í haust þar sem verða margir leikir með stuttu millibili. Það munu margir fá mínútur í þessum glugga."

Þetta er bland í poka
Átta skiptingar eru leyfðar á morgun, hyggst Arnar notfæra sér það?

„Þetta er bland í poka. Þú vilt ekki eyðileggja taktinn í leiknum með því að skipta bara til að skipta. En menn eru á mismunandi stað og það þarf að passa vel upp á suma leikmenn og sjá til þess að þeir verði ferskir. Þá þurfum við kannski skipta meira en ella en við viljum ekki eyðileggja taktinn."

„Við erum með hrikalega góðan hóp og með hverju árinu verður enn meiri hausverkur að velja liðið. En það er líka jákvætt hvað við framleiðum mikið af góðum leikmönnum."

Hrósaði Jesse Marsch
Arnar hitti Jesse Marsch, kollega sinn sem þjálfara Kanada. Hvað fór þeirra á milli?

„Ég hrósaði honum bara fyrir liðið hans. Ég sagði að hans handbragð væri meira farið að sjást og hann játti því. Þetta er leikstíll sem er ekki allra miðað við fréttirnar heima. Hann er mjög dínamískur og með ákefð, við höfum ekki mætt svona liði áfram. Við fáum ekki mikið andrými gegn þeim og æfingarnar núna hafa mikið farið í að finna lausnir gegn þessari pressu. Þegar á hólminn er komið þurfa menn að sýna hugrekki," segir Arnar.

Búist við 25-30 þúsund áhorfendum
Búist er við 25-30 þúsund áhorfendum á leikinn á morgun og Arnar hvetur fólk heima til að kveikja á sjónvarpinu á morgun og stilla inn á leikinn.

„Það gefur þessa extra krydd að vera að fara að mæta liði sem er á leið á HM. Ef ég væri leikmaður Kanada myndi ég vilja tryggja mér farseðilinn með góðri frammistöðu. Ég held að það verði ekki venjulegur vináttulandsleikjafílingur og vonandi verður þetta góð skemmtun."
Slapp
banner
banner
banner