27.10.26 - 13:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arnar Grétars talinn líklegastur til að taka við Blikum

Arnar talinn líklegastur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jökull númer tvö.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar talinn líklegastur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Ingi Skúlason hefur verið rekinn sem þjálfari Breiðabliks, félagið tilkynnti í morgun að hann hefði látið af störfum.
Margir eru orðaðir við þjálfarastöðuna en þau nöfn sem heyrast hæst eru nöfn þeirra Jökuls Elísabetarsonar og Arnars Grétarssonar.
Báðir eru þeir með sterkar tengingar við félagið, Jökull varð Íslandsmeistari sem leikmaður liðsins 2010 og starfaði sem þjálfari venslaliðsins Augnabliks um árabil. Arnar er uppalinn Bliki, varð bikarmeistari sem leikmaður liðsins 2009 og þjálfaði það á árunum 2015-2017.

TENGT EFNI
Hver tekur við Blikum? - Tíu nöfn sem gætu verið á blaði
Samkvæmt veðbankanum Epicbet er talið líklegast að Arnar taki við sem þjálfari liðsins (4,00 í stuðul) en Jökull fylgir fast á hæla hans (4,5 í stuðul). Eiður Smári Guðjohnsen, annar af þjálfurum KA, er svo þriðji líklegasti kosturinn (5,00 í stuðul).
Sigurður Heiðar Höskuldsson, sem hélt Þór uppi í Bestu deildinni, er talinn fjórði líklegasti kosturinn.
Aðrir sem Epicbet eru með á lista eru þeir Magnús Már Einarsson (Afturelding), Sigurður Ragnar Eyjólfsson (NSÍ í Færeyjum), Davíð Snorri Jónasson (aðstoðarþjálfari landsliðsins), Haraldur Freyr Guðmundsson (Keflavík), Rúnar Kristinsson (KR), Heimir Guðjónsson (Fylkir), Lárus Orri Sigurðsson sem látinn var fara frá ÍA, og Mikael Nikulásson, fyrrum leikmaður Augnabliks, laumar sér neðstur á lista.

Mynd: Skjáskot