Hver tekur við Blikum? - Tíu nöfn sem gætu verið á blaði


Mynd: Fótbolti.net


Mynd: Fótbolti.net
Liðið endaði í 5. sæti Bestu deildarinnar á nýliðnu tímabili sem var vel undir væntingum. Aðstoðarþjálfarinn Jón Guðni Fjóluson lætur einnig af störfum.

Leiðir Ólafs Inga og Breiðabliks skilja (Staðfest)

Eiður Smári Guðjohnsen - Náði ekki að bjarga KA frá falli en stimplaði sig aftur inn í þjálfarabransann. Margir telja að hans hugmyndafræði rími vel við það hvernig Breiðablik vill spila.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Guðjónsson - Hefur verið sterklega orðaður við ÍA og var orðaður við Stjörnuna. Virðist vera á leið frá Fylki og Breiðablik gæti blandað sér í leikinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jökull Elísabetarson - Átti erfitt tímabil og var rekinn frá Stjörnunni en er mikils metinn í Kópavoginum sem fyrrum leikmaður Breiðabliks og fyrrum þjálfari Augnabliks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús Már Einarsson - Hefur unnið magnað starf með sitt félag í Mosfellsbænum og er mættur með liðið aftur upp í efstu deild. Nafn hans hefur verið orðað við Breiðablik oftar en einu sinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Heiðar Höskuldsson - Gerði frábærlega með því að halda Þór í deildinni. Gerði það sama með Leikni um árið. Hvernig myndi hann standa sig með eitt stærsta lið landsins?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Kristinsson - Á sér marga aðdáendur í Kópavoginum. Það er erfitt að sjá hann yfirgefa Fram á þessum tímapunkti, með liðið á leið í Evrópu. En útilokum ekki að Breiðabliki kanni möguleikann!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson - Nýkrýndur Færeyjameistari og hefur talað um löngun sína til að vinna hjá stóru félagsliði á Íslandi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Grétarsson - Er goðsögn hjá Breiðabliki og fyrrum þjálfari liðsins. Var rekinn frá Breiðabliki 2017 en síðan eru liðin mörg ár og öll sár væntanlega gróin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lárus Orri Sigurðsson - Ósáttur við að hafa ekki fengið að halda áfram sem þjálfari ÍA. Það er kannski ekki líklegt að hann verði ráðinn til Breiðabliks á þessum tímapunkti en á skilið að nafn hans sé nefnt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Freyr Guðmundsson - Nánast allir spáðu Keflavík neðsta sæti Bestu deildarinnar en hann endaði með liðið í efri hlutanum. Gríðarlega yfirvegaður í öllum viðtölum og hefur vakið athygli með árangri sínum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
