Fotbolti.net
27.10.26 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Niko ræðir tímabilið: Að mínu mati er hann langbesti maður deildarinnar

Varð Íslandsmeistari í fimmta sinn.

Varð Íslandsmeistari í fimmta sinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Danski framherjinn Nikolaj Hansen fagnaði á laugardag sínum fimmta Íslandsmeistaratitli. Nikolaj var ekki í stóru hlutverki í Bestu deildinni á tímabilinu en spilaði mikilvæga leiki í Evrópu.

Hann byrjaði einungis fimm deildarleiki á tímabilinu og kom tíu sinnum inn á. Hlutverkið hefði mögulega verið stærra ef hann hefði ekki glímt við meiðsli hluta af tímabilinu.
Niko Hansen fengið þau skilaboð að hann megi líta í kringum sig
TENGT EFNI

Niko Hansen fengið þau skilaboð að hann megi líta í kringum sig

Vonbrigði að spila ekki meira á tímabilinu
Bjóstu við takmörkuðu við hlutverki á tímabilinu?

„Ég byrjaði fyrstu leiki tímabilsins, en svo meiddi ég og var ekki heill yfir tveggja mánaða tímabil sem var mikilvægasti hluti tímabilsins. Ég vildi alveg spila meira, en við erum með stóran hópa, marga góða leikmenn og þjálfarinn velur liðið. Maður verður að virða það. Ég reyni á hverri æfingu að gefa allt í hlutina og sýna að ég eigi að spila, æfi alla daga. Auðvitað eru vonbrigði að spila ekki meira, en þannig er bara fótboltinn."

Pirrandi að skora ekki en spáði ekki of mikið í því
Nikolaj náði ekki að skora í deildinni, var það eitthvað sem hann spáði í?

„Nei, ekki mikið. Ef horft í mínúturnar þá er ég með færri en 600 mínútu í deildinni. Það er erfiðara að ná flæði í leikinn ef þú ert bara með fimm mínútur hér og tíu mínútur þar. Auðvitað vil ég skora, pirrandi að hafa ekki náð því, en þetta eru engin rosaleg vonbrigði. Þegar ég spila kem ég með meira en bara mörk að borðinu. Stundum fellur þetta með þér, en stundum ekki. Ég er meistari í dag og ég er ánægður með það."

Skoraði þrjú í forkeppni Meistaradeildarinnar
Nikolaj skoraði öll mörk Víkings í heimasigrum á Györ og Hapoel Be'er Sheva. Eru það hápunktar sumarsins?

„Auðvitað fyrir mig persónulega voru þetta stærstu augnablikin. Ég var í stóru hlutverki í liðinu í þessum leikjum."

Breiddin og gæðin lykillinn að titlinum - Gylfi leiðir með fordæmi
Víkingur varði Íslandsmeistaratitilinn í ár, liðið var áfram ansi sterkt en lenti í fleiri áföllum á þessu ári.

„Við erum með mjög stóran hóp, það er rétt, og við vorum mjög óheppnir með 4-5 slæm meiðsli sem þú sérð ekki oft að lið komast í gegnum. Lykillinn að velgengninni í ár var stór hópur og gæðin í hópnum. Við erum með marga sigurvegara í hópnum."

„Þú sérð Gylfa, hann er 37 ára og besti leikmaður deildarinnar. Að mínu mati er hann langbesti leikmaður deildarinnar. Það verður að virða það að leikmaður á þessum aldri sé með kraftinn og viljann til að halda áfram og sýna hversu megnugur hann er. Hann gerði alla í kringum sig betri og það er lykill í þessari velgengni. Munurinn á Gylfa frá því að hann kom fyrst er mikill, eftir að leið á síðasta tímabil gaf hann enn meira í, talar meira og er með meiri kröfur á liðsfélagana. Það hefur haft áhrif."


Magnað að fylgjast með Gylfa
Hvernig er að fylgjast með Gylfa yfir tímabilið, það sem hann leggur á sig varðandi endurheimt og slíkt?

„Þú sérð að hann hefur verið að spila á miklu hærra getustigi. Íslensk félög eru kannski ekki með þá hluti sem þarf til að ná eins góðri endurheimt og hægt er, Gylfi verður sér út um það, leggur á sig til að ná betri endurheimt og maður verður að virða það. Ég held að það séu fáir á þessum aldri sem myndu ganga svona langt, en það sýnir bara hvaða karakter býr í honum. Hann veit hvað virkar best fyrir sig."

Gott að hitta Ingvar
Hvernig var lyfta skildinum á laugardag?

„Það var gaman. Ég elska að vinna, elska að vera í liði sem vinnur leiki. Markmiðið var að vinna og að ná því er góð tilfinning. Það var gott að sjá Ingvar, gott að hann gat komið og lyft skildinum með okkur. Ég held að það hafi haft mikla þýðingu fyrir hann, okkur leikmennina og auðvitað stuðningsmennina."

Skemmtilegast þegar það er ekki bara eitt lið sem stingur af
Hvernig metur þú landslagið í íslenska boltanum, KR er að ýta á ykkur en það er enn smá bil á milli?

„Núna höfum við unnið titilinn tvö tímabil í röð, það er gott að geta sýnt þann stöðugleika. Fyrir okkur var mikilvægt að vinna aftur, búum til smá bil á milli. En á sama tíma verðum við að virða KR, þeir spila mjög flottan fótbolta, eru skemmtilegir og gaman að horfa á þá. Við vorum besta liðið í ár, erum með fullmótaðasta liðið að mínu mati."

„Leikstílinn býður upp á marga kosti, þetta er ekki bara búið til á þessu ári, heldur hefur verið gert síðustu níu ár myndi ég segja. Þetta tekur tíma. Það sést líka á breytingunni á KR milli ára, vonandi ná þeir að veita okkur samkeppni á næsta ári því það er skemmtilegast þegar það eru lið að berjast um toppsætið. Við höfum búið til góðan sigurkúltúr, við erum aldrei sáttir ef við töpum og ef við töpum viljum við alltaf svara fyrir það."


Töpuðu bara einum leik
Nikolaj segir að það hafi ekkert sérstakt komið sér á óvart með Víkingsliðið í ár.

„Við æfum mjög vel, vitum hvað við eigum að gera og menn skilja sín hlutverk á vellinum. Við töpuðum bara einum leik í deildinni, það kemur kannski smá á óvart, en ég held að tölfræðin sýni að við erum alltaf að byggja ofan á það sem við höfum verið að gera. Það verður að bera virðingu fyrir því og á sama tíma verðum við að njóta þess á meðan á því stendur."

Markahæsti leikmaður íslenskra liða í Evrópuleikjum
Nikolaj er markahæsti leikmaður í sögu íslenskra liða í Evrópukeppnum með 16 mörk í 37 leikjum. Hver er lykillinn að því að skora mörk í Evrópu?

„Það er blanda af því að mér líði vel í leikjunum og á sama tíma hef ég verið í góðri rútínu á þeim tímapunktum. Liðið spilar góðan sóknarbolta og liðið spilar í kringum mig, þetta er ekki bara ég, ég er með frábæra leikmenn í kringum mig. Ég elska að spila leiki og elska að skora mörk. Ég nýt þess að spila fótbolta," segir Nikolaj að lokum.
Lyfti skildinum í þriðja sinn.

Lyfti skildinum í þriðja sinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingvar með skjöldinn.

Ingvar með skjöldinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi var besti leikmaður tímabilsins.

Gylfi var besti leikmaður tímabilsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nikolaj skoraði mikilvæg mörk í Evrópu.

Nikolaj skoraði mikilvæg mörk í Evrópu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Ég elska að spila leiki og elska að skora mörk'

'Ég elska að spila leiki og elska að skora mörk'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi skorað níu mörk í deildinni og lagði upp fjögur.

Gylfi skorað níu mörk í deildinni og lagði upp fjögur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjórum sinnum Íslandsmeistarar á árunum 2021-2026.

Fjórum sinnum Íslandsmeistarar á árunum 2021-2026.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lykillinn að velgengninni í ár var stór hópur og gæðin í hópnum. Við erum með marga sigurvegara í hópnum

Lykillinn að velgengninni í ár var stór hópur og gæðin í hópnum. Við erum með marga sigurvegara í hópnum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.