26.10.26 - 16:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Niko Hansen fengið þau skilaboð að hann megi líta í kringum sig

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í fjórða sinn Íslandsmeistari með Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoraði tvö mörk í heimasigri á Hapoel Beer Sheva.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það hefur kvisast út að danski markaskorarinn Nikolaj Hansen hafi fengið þau skilaboð frá Víkingi að hann yrði líklega ekki í stóru hlutverki í liðinu á næsta tímabili.
Hann er með áframhaldandi samning við Víking en hann hefur fengið leyfi til að kanna landið og skoða aðra möguleika. Þetta staðfestir hann í samtali við Fótbolta.net.
Hann var ekki í stóru hlutverki í Bestu deildinni í sumar, spilaði einungis 554 mínútur í deildinni en skoraði mikilvæg mörk í Evrópu fyrir Víkinga.

„Ég hef fengið þau skilaboð að ég má finna mér nýtt lið ef ég vil. Ég er með samning út næsta ár og er aðeins að hugsa hvað ég vil gera. Kannski er kominn tími til að prófa eitthvað nýtt. Ég er búinn að vera í langan tíma í Víkingi, kannski er gott að fara í nýtt umhverfi. Ég fékk þau skilaboð að hlutverk mitt myndi minnka og ef ég vildi þá mætti ég fara í nýtt lið. Það er ekki verið að ýta mér út og ef ég spila vel þá mun ég fá að spila með Víkingi. Ég átta mig alveg á því að með þessum skilaboðum er ljóst að hlutverkið yrði ekki stórt. Önnur félög mega hafa samband við mig, þannig er staðan."
„Það er auðvitað skrítið að fá svona skilaboð. Á sama tíma skynja ég líka að þetta sé gert af virðingu við mig. Ég hef verið lengi í Víkingi og það er ákveðin virðing líka í því að segja hvernig hlutirnir eru. Það er alveg skrítið að fá svona skilaboð verandi með áframhaldandi samning. Samband mitt við alla í Víkingi er gott og þetta er undir mér komið hvað ég vil gera. Þetta eru níu ár og ég hef eiginlega unnið allt," segir NIkolaj.
Það er ekkert eiginlega með það, Nikolaj hefur unnið báða stóru titlana með Víkingi og það fjórum sinnum.
Sigursælasti erlendi leikmaður í sögu íslenska boltans
Nikolaj hefur fimm sinnum orðið Íslandsmeistari og fimm sinnum bikarmeistari. Átta af titlunum hefur hann unnið með Víkingi og tvo vann hann með Val. Einungis þrír leikmenn hafa tekið þátt í öllum átta titlum Víkings síðustu ár. Það eru ásamt Nikolaj þeir Viktor Örlygur Andrason og Erlingur Agnarsson en Erlingur var lánaður í FH í sumarglugganum.
Með Íslandsmeistaratitlinum í ár er Nikolaj sigursælasti erlendi leikmaðurinn til að spila á Íslandi, tók fram úr sínum fyrrum liðsfélaga, Pablo Punyed, sem hefur unnið níu stóra titla.
„Þegar ég ræddi við umboðsmanninn á sínum tíma þá ætlaði ég að nota Ísland sem stökkpall því danska félagið mitt varð gjaldþrota. Ég er ánægður með hvað ég hef gert á Íslandi og sérstaklega hjá Víkingi. Ég var fyrirliði liðsins á líklega tveimur bestu árum liðsins. Ég er stoltur af því."
Ætlar að spila áfram á Íslandi
Ef þú færir þig um set, ertu að horfa á íslensku deildina eða erlendis?
„Það væri í forgangi að vera áfram á Íslandi. Fjölskyldan er hér, Ísland er mitt heimili. En ef ekkert sérstakt kemur upp þá gæti ég þurft að horfa á aðra kosti - eða bara taka slaginn með Víkingi. Ef ég verð áfram hjá Víkingi mun ég gera allt til að spila á næsta tímabili."
„Þetta er ekki bara mitt val, þetta veltur á því að önnur félög hafi áhuga. Ég er strax núna til í að hlusta á hvað sé í boði. Undirbúningstímabilið hefst eftir mánuð og ég er klár að hlusta ef eitthvað áhugavert kemur upp. Ég er ekki reiður við Víking, þeir eru að hugsa um hvað sé best fyrir liðið og ég verð að bera virðingu fyrir því."
Á mikið eftir
Þú ert 33 ára og þekkir þinn líkama, hversu mörg ár heldur þú að þú eigir eftir á tankinum?
„Ég á mikið eftir. Ég er enn hungraður að spila meira og vinna meira. Ég vil sýna að ég geti spilað áfram, gef mig allan í æfingar til að sýna að ég eigi að spila. Mér líður vel í líkamanum. Ég var óheppinn að togna á mikilvægum tímapunkti á tímabilinu. Mér líður vel í líkamanum og ég held að ég hafi aldrei misst af æfingu vegna veikinda frá því að ég mætti í Víking, segir Nikolaj.