Jón Daði Böðvarsson hefur farið hamförum með Burton í ensku C-deildinni síðan hann gekk til liðs við félagið fyrr í þessum mánuði.
Hann skoraði annað mark liðsins í dramatískum sigri gegn Reading í kvöld. Burton var 2-0 yfir í hálfleik en Reading tókst að jafna með mörkum á tveggja mínútna kafla. Þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma kom sigurmark Burton.
Liðið er í 21. sæti, sem er fallsæti, með 24 stig eftir 28 umferðir en liðið er þremur stigum frá öruggu sæti. Burton hefur unnið þrjá af fjórum leikjum sínum síðan Jón Daði kom. Hann hefur skorað fjögur mörk í síðustu þremur leikjum.
Benoný Breki Andrésson kom ekkert við sögu í 1-0 sigri Stockport gegn Shrewsbury. Stockport er í 5. sæti með 47 stig eftir 28 umferðir. Willum Þór WIllumsson er enn að jafna sig af meiðslum og var því ekki með þegar Birmingham vann Huddersfield 1-0. BIrmingham er á toppnum með 60 stig eftir 26 umferðir en liðið er með tveggja stiga forytsu á Wycombe og á tvo leiki til góða.
Jason Daði Svanþórsson lék allan leikinn þegar Grimsby gerði 1-1 jafntefli gegn Gillingham í D-deildinni. Grimsby er í 10. sæti með 39 stig eftir 28 umferðir.
Síðustu tíu mínúturnar í leik Heracles og Groningen í hollensku deildinni voru spilaðar í kvöld en leiknum var frestað eftir óeirðir í stúkunni og fyrir utan völlinn en leikurinn fór fram 21. desember. Staðan var 1-1 þegar leikurinn var flautaður af í desember og engum mörkum var bætt við í kvöld. Brynjólfur Willumsson spilaði leikinn. Groningen er í 14. sæti með 21 stig eftir 20 umferðir.
Athugasemdir