Fotbolti.net
28.03.26 - 18:15
Fótbolti.net

Sjáðu mörkin: Orri óstöðvandi að eyðileggja partíið hjá Kanada

Sjáðu mörkin: Orri óstöðvandi að eyðileggja partíið hjá Kanada
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Ísland er 2-0 yfir í hálfleik á útivelli gegn Kanada í vináttulandsleik sem nú er í gangi. Leikurinn er sýndur beint og í opinni dagskrá á Sýn Sport og hér að neðan má sjá mörkin úr fyrri hálfleik.

Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson er með alvöru endurkomu í landsliðið og skoraði bæði mörkin.

„Skyndilega var Orri kominn einn gegn markverði Kanada og nánast með allan tíma heimsins. Gerði þetta frábærlega! Endurkomumark eftir hrikaleg mistök í vörn Kanada. Kamal Miller með afleita sendingu," skrifaði Elvar Geir Magnússon, sem er í Kanada, um fyrra markið í textalýsingu frá leiknum.

Orri tvöfaldaði síðan forystu Ísland með sínu öðru marki á 22. mínútu.

„ORRI ÓSTÖÐVANDI!!!! Mikael Egill leikur á Niko Sigur og á frábæra sendingu á Orra sem tekur hann í fyrsta rétt innan vítateigs... Bang og mark! Þéttingsfast skot. Það er verið að skemma partíið hjá Kanada!"
Lestu um leikinn: Kanada 2 - 2 Ísland


Orri

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.