SKÝRSLAN: Orri sýndi gæði sín - Jákvætt og neikvætt eftir leikinn gegn Kanada
Hvað réði úrslitum?
Íslenska liðið var hrikalega öflugt og vel samstillt í fyrri hálfleik og skilaði það 2-0 forystu þegar haldið var til búningsherbergja. Umdeildur vítadómur kom Kanada á bragðið og liðið náði að þrýsta strákunum okkar ansi djúpt niður svo leikurinn fór að mestu fram á okkar vallarhelmingi í seinni hállfeik.
Bestu leikmenn
1. Orri Steinn Óskarsson
Auðvelt val. Sýndi gæði sín með tveimur frábærum mörkum og minnti á hvers sárt hans var saknað í undankeppni HM. Frábær endurkoma landsliðsfyrirliðans.
2. Mikael Egill Ellertsson
Hafði í nægu að snúast í leiknum og ég set hann í þennan dálk þó hann hafi fengið á sig víti. Hann segir sjálfur að dómurinn hafi verið bull og að mótherji sinn sem fékk vítið sé sammála. Nánar í viðtalinu við Mikael.
Atvikið
Þetta mikilvæga þriðja mark. Kanada fékk ódýra vítaspyrnu (mögulega kolranga) og minnkaði muninn í 2-1. Svekkjandi.
Hvað þýða úrslitin?
Eins og spáð var fyrir leikinn var þetta alls ekki hefðbundinn vináttulandsleikur enda Kanada að búa sig undir HM og samkeppnin um sæti í liðinu mikil. Það var meiri barátta, kraftur og orka. Rautt spjald fór á loft. Vináttuleikur sem Ísland getur lært mikið af.
Vondur dagur
Vont að komast í 2-0 og ná ekki að landa sigri eftir það. Liðið er að fá of mikið af mörkum á sig og það er eitthvað sem þarf að finna lausnir á. Bæði mörk Kanada komu af vítapunktinum. Stórt spurningamerki má setja við fyrri dóminn en í þeim seinni var Hörður Björgvin réttilega dæmdur brotlegur eftir slakan varnarleik.
Dómarinn - 4
Mér fannst sá bandaríski með flott tök framan af en svo komu stór atvik sem hann fór að klikka á og tökin voru skyndilega farin.



