Annar af þjálfurum norsku meistaranna í Viking, Morten Jensen, var á Kópavogsvelli þegar Breiðablik tók á móti KR síðasta föstudag. Hann sat þar við hlið umboðsmannsins Kjartans Henrys Finnbogasonar. Á hægri hönd Kjartans sat svo Stipe Matic njósnari hjá svissnesku meisturunum í Thun.
Í Útvarpsþættinum Fótbolti.net síðasta laugardag var Andri Júlíusson gestur. Hann lék á sínum tíma í Noregi og sagði að vinir hans hefðu spurt hann hvaða leikmanni þjálfarinn hefði verið að fylgjast með.
Í Útvarpsþættinum Fótbolti.net síðasta laugardag var Andri Júlíusson gestur. Hann lék á sínum tíma í Noregi og sagði að vinir hans hefðu spurt hann hvaða leikmanni þjálfarinn hefði verið að fylgjast með.
„Mögulega Eið Gauta, mögulega Ágúst Orra, mögulega Kristófer Inga... það voru svo margir leikmenn sem hann hefði getað verið að skoða. Sigurður Breki skoraði tvö mörk, Amin Cosic var góður og Anton Logi tók yfir leikinn," sagði Andri í þættinum. Anton Logi var valinn maður leiksins og hann hefur spilað í Noregi, var hjá Haugesund 2024.
„Ég heyrði því fleygt fram að Ágúst væri að fara í glugganum, sel það svo sem ekki dýrar en ég fékk það," sagði Valur Gunnarsson.
Kjartan Henry neitaði að tjá sig þegar Fótbolti.net hafði samband, en samkvæmt þeim upplýsingum sem Fótbolti.net hefur fengið er talsverður áhugi á bæði Ágústi Orra og Amin Cosic erlendis frá. Aðilar frá Molde hafa komið til Íslands og kíkt á þá spila. Þeir eru báðir fæddir 2005 og eru með Ólaf Garðarsson sem umboðsmann, en Ólafur og Kjartan Henry vinna saman.
Ágúst var sterklega orðaður við atvinnumennsku í vetur og var nálægt því að fara til Póllands, en ekkert varð úr því. Bæði Ágúst og Amin eru í U21 landsliðinu og hafa spilað vel í upphafi móts. Amin hefur skorað fjögur mörk og lagt upp eitt og Ágúst hefur skorað tvö mörk og lagt upp tvö í deildinni. Báðir eru þeir lykilmenn í sóknarleik sinna liða.




