Fotbolti.net
29.01.25 - 11:00
Elvar Geir Magnússon

„Ekki segja það upphátt en þetta fyrirkomulag er snilld“

Úrslitaleikurinn í ár verður á Allianz Arena í München.

Úrslitaleikurinn í ár verður á Allianz Arena í München.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Sem fótboltaáhugamenn eigum við að hata breytingar. Ekki segja það upphátt en nýja fyrirkomulagið í Meistaradeildinni hefur heppnast vel, eða ef við notum orðalag UEFA þá hefur það 'hitt í mark'," segir Lewis Steele blaðamaður hjá Daily Mail.

Deildarkeppni kom í stað riðlakeppni og lokaumferðin fyrir útsláttarkeppnina er í kvöld. Átta efstu liðin fara beint í 16-liða úrslit en liðin í sætum 9-24 í umspil og spennan er mikil.
Meistaradeildin í dag - Man City þarf á sigri að halda í lokaumferðinni
TENGT EFNI

Meistaradeildin í dag - Man City þarf á sigri að halda í lokaumferðinni

„Af 18 leikjum sem hefjast allir á sama tíma í kvöld þá er eitthvað í húfi í 16 af þeim. Framtíðin er ekki ljós hjá 27 af 36 liðum. Hvað getur maður verið óánægður með?"

„Það eru margar spurningar óráðnar. Ef Manchester City vinnur er liðið komið áfram, jafntefli eða tap og það er úr leik. Mun Aston Villa ná í topp átta eða þarf það að sætta sig við umspil? Hvar endar Arsenal? Burt séð frá ensku liðunum er ýmislegt annað áhugavert. Þrátt fyrir að hafa pakkað City saman þá gæti Paris Saint-Germain fallið úr leik ef liðið tapar gegn Stuttgart."

„Það heyrðust efasemdarraddir um nýja fyrirkomulagið í Meistaradeildinni þegar það var kynnt. Það hefur síðan reynst snilld... kannski ekki ef þú heldur með einu af stóru liðunum sem hafa verið í vandræðum. En þegar kemur að skemmtanagildi hefur þetta verið frábært," segir Steele.

„Þetta er ekki fullkomið en þetta er betra en nokkur bjóst við. Það er tilefni til að fá sér drykk í kvöld og njóta gleðinnar í kvöld. Ef þú ert í þurrum janúar er hægt að njóta kvöldsins með samstarfsaðila Meistaradeildarinnar, Heineken núll prósent."

„Ekki segja það upphátt en þetta fyrirkomulag er snilld“
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1PSG1+53
2Bayern1+53
3Barcelona1+43
4Man Utd1+43
5Como1+33
6Stuttgart1+23
7Sporting1+23
8Man City1+23
9Aston Villa1+13
10Lens1+13
11Betis1+13
12Dortmund1+13
13Liverpool1+13
14Real Madrid1+13
15Arsenal1+13
16AEK1+13
17Roma101
18Shakhtar D101
19PSV101
20Fenerbahce101
21Villarreal1-10
22Lille1-10
23Slavia Prag1-10
24Club Brugge1-10
25Inter1-10
26Atletico Madrid1-10
27Napoli1-10
28LASK Linz1-10
29Viking FK1-20
30Galatasaray1-20
30Sparta Prag000
31Porto1-20
32RB Leipzig1-30
33Feyenoord1-40
34Sabah FK1-40
35Slovan1-50
36Bodö/Glimt1-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.