Steve Clarke: Rétti tíminn til að stíga til hliðar

Steve Clarke.

Mynd: EPA

Á fréttamannafundi.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Steve Clarke.

Mynd: EPA
Steve Clarke segir að það hafi verið auðveld ákvörðun að hætta sem landsliðsþjálfari Skotlands. Hann hafi verið búinn að ákveða það að segja þetta gott ef liðið kæmist ekki upp úr riðli sínum á HM.
Hann tilkynnti leikmönnum sínum þessa ákvörðun á laugardagskvöld á hótelinu í Charlotte.
Clarke fékk talsverða gagnrýni á mótinu, meðal annars fyrir viðmót sitt í viðtölum við fjölmiðla.
Það er aðeins mánuður síðan Clarke skrifaði undir nýjan fjögurra ára samning við skoska sambandið.

TENGT EFNI
Með hressustu stuðningsmennina en fúlasta þjálfarann
„Við sýndum Marokkó og Brasilíu keppni, bæði liðin geta komist langt á mótinu. Við sýndum mikinn karakter en fundum ekki gæðin á síðasta þriðjungi," segir Clarke.
„Ég fann að þetta var rétti tíminn til að stíga til hliðar. Að skrifa undir þennan samning var skilaboð til leikmanna um að við gætum haldið ferðalaginu áfram. Ég var samt alltaf með það í huga að ef við kæmumst ekki í útsláttarkeppnina væri líklega rétt að segja þetta gott."
„Allir eru að segja að komið sé að leiðarlokum hjá þessum hópi en það er ekki rétt, þeir geta allir spilað á EM 2028."