Fotbolti.net
29.07.26 - 12:34
Elvar Geir Magnússon

Infantino tilkynnir KSÍ að sambandið fái yfir fimm milljarða styðji það áform sín

Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ.

Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gianni Infantino, forseti FIFA, hefur skrifað bréf til allra 211 aðildarsambanda sinna og segir að hvert samband fái 40 milljónir Bandaríkjadala ef það styður áform sín um að bjóða utanaðkomandi fjárfestum að innviðum sambandsins, þar á meðal HM.

KSÍ gæti þá fengið rúmlega fimm milljarða króna í sinn hlut ef sambandið styður þessar áætlanir Infantino. Hann hefur sett frest til 19. september fyrir aðildarsamböndin að samþykkja.
Leikur allt á reiðiskjálfi og Evrópa gæti sniðgengið HM
TENGT EFNI

Leikur allt á reiðiskjálfi og Evrópa gæti sniðgengið HM

Þorvaldur á neyðarfundi UEFA
Áætlanir Infantino hafa hlotið hörð viðbrögð og margir lýst yfir áhyggjum sínum. UEFA er mótfallið og hefur boðað til neyðarfundar sem fram fer á morgun og hyggst bregðast kröftuglega við.

„Akkúrat núna liggja ekki fyrir nægar upplýsingar um útfærslu á hugmynd FIFA og því of snemmt að segja til um nokkra afstöðu. FIFA mun væntanlega kynna málið vel fyrir samböndunum, því eins og hefur komið fram er framkvæmdin og útfærslan háð samþykki aðildarlanda FIFA," segir Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis.

Það hefur neistað milli FIFA og UEFA í nokkurn tíma og andað köldu milli forsetana, Gianni Infantino og Aleksander Ceferin. Vísir segir líkleg að KSÍ taki afstöðu með UEFA eftir fund morgundagsins.
Gianni Infantino, forseti FIFA.

Gianni Infantino, forseti FIFA.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.