Fotbolti.net
29.11.25 - 12:01
Brynjar Ingi Erluson

Mikill áhugi á Kristali Mána

Mikill áhugi á Kristali Mána
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Danski blaðamaðurinn Farzam Abolhosseini segir frá því í dag að mörg félög hafi áhuga á því að fá Kristal Mána Ingason, leikmann SönderjyskE.
Kominn á gott skrið eftir erfið meiðsli - „Hægt að kíkja á hann ef maður er ekki fastur í Fortnite"
TENGT EFNI

Kominn á gott skrið eftir erfið meiðsli - „Hægt að kíkja á hann ef maður er ekki fastur í Fortnite"

Kristall hefur verið einn af aðalmönnum SönderjyskE á tímabilinu, en hann hefur skorað sjö mörk og gefið þrjár stoðsendingar í sextán leikjum í deild- og bikar.

Sóknarmaðurinn er farinn að vekja áhuga fjölda liða í Belgíu, Hollandi og Þýskalandi, og er talið að það muni eitthvað gerast í hans málum á næstunni.

Hann á aðeins eitt og hálft ár eftir af samningi sínum hjá SönderjyskE, og kæmi það því sér ansi vel fyrir félagið að selja hann í janúar eða næsta sumar.

Kristall, sem er 23 ára gamall, ólst upp í Fjölni en fór ungur að árum til FCK í Danmörku. Hann kom heim í Víking og vann þar Íslands- og bikarmeistaratitilinn áður en hann gekk í raðir Rosenborg í Noregi. Þar lék hann í eitt og hálft ár áður en hann fór til SönderjyskE árið 2023.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.