Fotbolti.net
30.01.25 - 15:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Róbert Orri: Mjög skrítin vinnubrögð hjá SönderjyskE

Róbert Orri: Mjög skrítin vinnubrögð hjá SönderjyskE
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Um helgina var fjallað um að Róbert Orri Þorkelsson myndi skrifa undir samning við danska félagið SönderjyskE. Danski miðillinn Tipsbladet hafði heimildir fyrir því að Róbert væri búinn að samþykkja samningstilboð frá SönderjyskE, það eina sem væri eftir væri læknisskoðun að hann myndi skrifa undir þriggja og hálfs árs samning. Hann hitti liðið á Spáni þar sem það er í æfingaferð.

Í gær var svo fjallað um að hann fengi ekki samning hjá liðinu og í kjölfarið var annar miðvörður kynntur til sögunnar hjá félaginu.
Róbert Orri fer ekki til SönderjyskE eftir allt saman
TENGT EFNI

Róbert Orri fer ekki til SönderjyskE eftir allt saman

„Ég fór með þeim tilgangi að skrifa undir samning við Sonderjyske. Þetta voru mjög skrítin vinnubrögð en ég get ekki stjórnað því. Nú tek ég bara næstu skref með mínum umboðsmönnum og við sjáum til hvað gerist," segir Róbert Orri í stuttu svari við fyrirspurn Fótbolta.net.

Róbert er án félags sem stendur en samningur hans við CF Montreal í Kanada rann út í síðasta mánuði. Hann lék á láni frá Montreal með norska liðinu Kongsvinger á síðasta tímabili.

Róbert er 22 ára gamall og hefur verið mikilvægur hlekkur upp öll yngri landslið Íslands frá U16 allt að U21, auk þess að eiga 4 A-landsleiki að baki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.