Fotbolti.net
30.05.20 - 16:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Æfingaleikur: Ekki mikil vinátta í leik ÍA og Víkings Ó.

Sindri Snær fékk rautt spjald.

Sindri Snær fékk rautt spjald.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA 2 -1 Víkingur Ó.
1-0 Viktor Jónsson
1-1 Indriði Áki Þorláksson
2-1 Tryggvi Hrafn Haraldsson, víti
ÍA lagði Víking Ólafsvík í leik sem fram fór á Akranesvelli í dag. Það var ekki eins og um æfingaleik eða vináttuleik væri um að ræða þar sem mikil harka var í leiknum.

Viktor Jónsson kom Skagamönnum yfir undir lok fyrri hálfleiks, en tiltölulega snemma í þeim seinni jafnaði Indriði Áki Þorláksson fyrir Ólsara.

Tryggvi Hrafn Haraldsson, sem lögðu fram tilboð í, skoraði sigurmark ÍA úr vítaspyrnu þegar lítið var eftir.

Dómari leiksins, Ívar Orri Kristjánsson, hafði nóg að gera og fór meðal annars rautt spjald á loft. Sindri Snær Magnússon, miðjumaður ÍA, fékk það fyrir groddaralega tæklingu á fyrrum liðsfélaga sínum, Gonzalo Zamorano. Nokkrum sekúndum síðar hefði Gonzalo líklega átt að fá rautt spjald sjálfur fyrir ljóta tæklingu, en hann slapp.

ÍA leikur í Pepsi Max-deildinni í sumar, en Víkingur Ólafsvík er í Lengjudeildinni.




Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.