Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
banner
   mið 30. nóvember 2016 23:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Markvörður skoraði með hjólhestaspyrnu í blálokin
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Það er afar sjaldgæft að markmenn nái að koma boltanum í netið hjá andstæðingnum, en það gerist þó einstaka sinnum.

Það gerðist í dag þegar markmaður sá um að tryggja Baroka FC jafntefli gegn Orlando Pirates í úrvalsdeildinni í Suður-Afríku.

Markið var einstaklega fallegt, en það kom úr hjólhestaspyrnu eins og sjá má hér að neðan.

Til að bæta aðeins við dramatíkina þá kom markið á 95. mínútu, síðustu mínútu uppbótartímans sem gefinn var upp.

Hér að neðan má sjá myndband af markinu.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner