Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
   fim 25. september 2008 14:55
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: El Mundo Deportivo 
El Mundo Deportivo: Gracias Guddy
Mynd: Getty Images
Spænska blaðið El Mundo Deportivo fer fögrum orðum um Eið Smára Guðjohnsen leikmann Barcelona eftir sigurmark hans gegn Real Betis í gær.

Eiður Smári kom inná af varamannabekknum og skoraði sigurmark liðsins þegar tíu mínútur voru eftir í 3-2 sigri.

"Gracias Guddy" er fyrirsögnin á forsíðu El Mundo en á íslensku er það "Takk fyrir Guddy".

Eiður Smári hefur mátt verma varamannabekk Barcelona mikið á þessari leiktíð en þetta var í annað skiptið sem hann fær að koma inná.

Í umfjöllun El Mundo Deportivo er Eiði Smára líka þakkað fyrir að bjarga kvöldinu fyrir Samuel Eto´o sem var að skora sitt 100 mark fyrir Barcelona.
Athugasemdir
banner
banner