Fimm leikir fara fram í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld
Bæði Real Madrid og Barcelona eiga leiki í kvöld en liðin eru í baráttu um spænska meistaratitilinn.
Real Madrid er í toppsætinu með 55 stig og á leik til góða á Barcelona sem er í öðru sætinu með 54 stig.
Barcelona mætir Sporting Gijon en Real Madrid fær Las Palmas í heimsókn.
Þá eiga Sverrir Ingi Ingason og félagar í Granada mikilvægan leik gegn Alaves í fallbaráttunni en Granada er í 19. sæti með 16 stig, þremur stigum frá öruggu sæti.
Leikir kvöldsins:
18:30 Barcelona - Sporting Gijon
18:30 Osasuna - Villareal
20:30 Celta Vigo - Espanyol
20:30 Granada - Alaves
20:30 Real Madrid - Las Palmas
Athugasemdir