Ágúst Eðvald Hlynsson, ungur leikmaður Breiðabliks, er þessa dagana á reynslu hjá Köln í Þýskalandi.
Þetta er í annað skipti sem Ágúst æfir með Köln en eftir síðustu heimsókn vildu forráðamenn félagsins fá hann aftur til skoðunar.
Ágúst er fæddur árið 2000 og er því ennþá í þriðja flokki Breiðabliks.
Águst á einn leik að baki með U17 ára landsliði Íslands en hann kom við sögu í leik gegn Grikkjum í undankeppni EM í haust.
Ágúst verður síðan áfram gjaldgengur með U17 ára landsliðinu á næsta ári.
Athugasemdir