Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 01. desember 2015 15:00
Magnús Már Einarsson
Newcastle kallar Iron Mike til baka
Mynd: Getty Images
Newcastle hefur ákveðið að kalla varnarmanninn Mike Williamson til baka úr láni frá Wolves.

Iron Mike, eins og hann er stundum kallaður, gekk í raðir Wolves á láni í síðasta mánuði.

Hann hafði spilað fimm leiki með Wolves í Championship deildinni.

Jamaal Lascelles meiddist gegn Crystal Palace á laugardaginn og því hefur Newcastle ákveðið að kalla Iron Mike til baka.

Newcastle er í basli í 19. sæti í ensku úrvalsdeildinni en liðið fær Liverpool í heimsókn á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner