Björn Bergmann Sigurðarson hefur lítið sem ekkert spilað með Molde undanfarna mánuði vegna nárameiðsla.
Björn Bergmann hefur einungis spilað einn leik síðan í maí en það var sigurleikur gegn Sogndal í júlí.
Samtals hefur Björn skorað tvö mörk í átta leikjum á þessu tímabili.
Vonast er til að Björn Bergmann geti snúið aftur í lið Molde fljótlega eftir landsleikjahléið sem er nú í gangi.
Molde gengur mjög vel en liðið er með átta stiga forskot á toppnum í norsku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir