Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   mið 02. september 2015 18:30
Elvar Geir Magnússon
Ívar Guðmunds verður raddlaus í útvarpinu á mánudag
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég fer á útileika hjá íslenska landsliðinu. Mér fannst algjört lágmark að sýna liðinu stuðning og hlakka mikið til að sjá leikinn á morgun," segir Ívar Guðmundsson, útvarpsstjarna á Bylgjunni.

Ívar er mættur til Amsterdam til að fylgjast með stórleik Hollands og Íslands á Amsterdam Arena.

„Það væri sigur ef við tækjum eitt stig úr þessum leik. Ég bjóst aldrei við að upplifa það að við ættum möguleika á að komast í lokakeppni stórmóts. Eins og þetta er núna þá lítur þetta vel út."

Ívar er með treyju frá Kolbeini Sigþórssyni með sér og ætlar að vera í henni á leiknum. Þá hyggst hann öskra og taka virkan þátt í stuðningnum úr stúkunni.

„Ætli ég verði ekki raddlaus í útvarpinu á mánudag," sagði Ívar en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner