Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   fim 04. febrúar 2016 21:08
Elvar Geir Magnússon
Ágúst Gylfa: Sýnist að Aron sé á förum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við áttum allan fyrri hálfleik og áttum að vera löngu búnir að klára þetta. Það eru góðir karakterar í Leiknis liðinu og þeir eiga fyllilega skilið að fara áfram," sagði Ágúst Gylfason þjálfari Fjölnis eftir að liðið tapaði í vítaspyrnkeppni gegn Leikni R. í undanúrslitum Reykjavíkurmótsins.

Lestu um leikinn: Leiknir R. 8 -  7 Fjölnir

Aron Sigurðarson spilaði með Fjölni í kvöld en norska félagið Tromsö hefur áhuga á að kaupa hann í sínar raðir.

„Mér sýnist að hann sé á förum. Miðað við frammistöðu hans undanfarnar vikur og möguleika sem hann hefur þá er enginn að fara að stoppa hann," sagði Ágúst en Fjölnismenn þurfa að styrkja hópinn sinn fyrir sumarið eftir að hafa orðið fyrir talsverðri blóðtöku frá síðasta tímabili.

„Það er búið að hræra í liðinu og við þurfum að byggja upp nýtt lið fyrir næsta tímabil. Við þurfum að fara yfir stöðuna og sjá hvað er í boði. Það reynir á bæði þjálfarana og allan hópinn að standa saman og gera þetta almennilega í sumar."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner