Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 04. febrúar 2016 11:00
Magnús Már Einarsson
Vill að Berahino hætti á Twitter og Instagram
Mynd: Getty Images
Ben Foster, markvörður WBA, vill að Saido Berahino framherji liðsins hætti á Instagram og Twitter og fari að einbeita sér að því að skora mörk á nýjan leik.

Berahino fékk ekki að fara frá WBA annan félagaskiptagluggann í röð en hann hefur meðal annars verið orðaður við Tottenham og Newcastle.

Berahino er duglegur að láta óánægju sína í ljósa á Twitter og Instagram en Foster vill að hann fari að einbeita sér að fótboltanum.

„Saido er góður strákur. Hann þarf ekki að gera heimskulega hluti en með Twitter og Instagram er auðvelt að komast í samband við fólk víðsvegar um heiminn," sagði Foster.

„Í hreinskilni væri best ef hann myndi eyða öllu þessu rusli og einbeita sér bara að því að spila fótbolta."
Athugasemdir
banner