Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
   lau 04. maí 2024 19:02
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Góð byrjun hjá KFG og Víkingi Ó. - Gary Martin opnaði markareikninginn
Gary skoraði í fyrsta leik
Gary skoraði í fyrsta leik
Mynd: Víkingur Ó.
Ólafur Bjarni gerði annað mark KFG
Ólafur Bjarni gerði annað mark KFG
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KFG og Víkingur Ó. unnu bæði góða sigra í fyrstu umferð í 2. deild karla í dag.

Víkingur Ó. vann 3-0 sigur á Völsungi á Ólafsvíkurvelli. Eftir markalausan fyrri hálfleik tóku Víkingar sig til og skoruðu öll þrjú mörkin á tólf mínútum.

Luke Williams gerði fyrsta markið í upphafi síðari hálfleiks áður en Gary Martin gerði sitt fyrsta mark fyrir félagið og það í fyrsta deildarleiknum, en hann kom til Víkings frá Selfossi á dögunum.

Arnór Siggeirsson kláraði síðan dæmið með þriðja markinu á 57. mínútu og þar við sat.

KFG hafði betur gegn KF, 2-0, á Samsung-vellinum. Heimamenn fengu vítaspyrnu á 18. mínútu. Dagur Orri Garðarsson setti boltann í hægra hornið. Javon Sample, markvörður KF, skutlaði sér í rétt horn en tókst ekki að halda honum út úr markinu.

Ólafur Bjarni Hákonarson gerði annað mark KFG á 40. mínútu leiksins. Hann keyrði hægra megin inn í teiginn og átti skot, sem hafði viðkomu af varnarmanni og fram hjá Sample í markinu.

Ágætis skemmtun í fyrstu umferðinni. Haukar eru á toppnum eftir 4-0 sigur liðsins á Hetti/Hugin, sem vermir botnsætið.

Úrslit og markaskorarar:

Víkingur Ó. 3 - 0 Völsungur
1-0 Luke Williams ('46 )
2-0 Gary John Martin ('51 )
3-0 Arnór Siggeirsson ('57 )

KFG 2 - 0 KF
1-0 Dagur Orri Garðarsson ('18, víti )
2-0 Ólafur Bjarni Hákonarson ('40 )
2. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Ægir 3 2 1 0 7 - 2 +5 7
2.    Haukar 3 2 1 0 6 - 1 +5 7
3.    Selfoss 2 2 0 0 2 - 0 +2 6
4.    Víkingur Ó. 2 1 1 0 5 - 2 +3 4
5.    KFA 2 1 1 0 4 - 2 +2 4
6.    KFG 2 1 0 1 2 - 1 +1 3
7.    Kormákur/Hvöt 3 1 0 2 4 - 4 0 3
8.    Reynir S. 2 1 0 1 3 - 4 -1 3
9.    Þróttur V. 2 0 1 1 1 - 3 -2 1
10.    Höttur/Huginn 2 0 1 1 1 - 5 -4 1
11.    Völsungur 2 0 0 2 0 - 4 -4 0
12.    KF 3 0 0 3 1 - 8 -7 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner