Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
banner
   lau 04. maí 2024 15:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Man City og Wolves: Haaland og Foden mættir aftur
Mynd: Getty Images

Pep Guardiola gerir þrjár breytingar á liði sínu sem vann Nottingham Forest í síðustu umferð.


Phil Fodeen kemur inn í liðið eftir að hafa misst af leiknum gegn Forest vegna veikinda. Þá er Erling Haaland mættur aftur í byrjunarliðið.

Mateo Kovacic kemur inn fyrir Jack Grealish.

Ein breyting er á liði Úlfana sem vann Luton 2-1 í síðustu umferð Hugo Bueno kemur inn fyrir Matt Doherty í vörnina.

Manchester City: Ederson, Gvardiol, Ake, Akanji, Walker, Rodri, Kovacic, Silva, De Bruyne, Foden, Haaland.

Varamenn: Ortega, Dias, Stones, Grealish, Doku, Alvarez, Gomez, Nunes, Lewis.

Wolves: Sa, Semedo, Kilman, Gomes, H Bueno, Gomes, Lemina, Traore, Ait-Nouri, Cunha, Hwang.

Varamenn: Bentley, Doherty, S Bueno, Sarabia, Bellegarde, Gonzalez, Okoduwa, Chirewa, Fraser.


Athugasemdir
banner