Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
banner
   sun 05. maí 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Fjölnir fær markmann frá Bandaríkjunum (Staðfest)
Mynd: Fjölnir
Kvennalið Fjölnis hefur fengið bandaríska markvörðinn Katie Sullivan og mun hún spila með liðinu út þetta tímabil.

Sullivan kemur frá Chicago en hún lék með Florida Gulf Coast-háskólanum í heimalandinu.

Samningur hennar við Fjölnir gildir út keppnistímabilið en hún lék sinn fyrsta leik gegn ÍA í Mjólkurbikarnum á dögunum og stóð sig frábærlega.

Hún verður klár í slaginn þegar Fjölnir heimsækir Hauka í 1. umferð 2. deildar kvenna á fimmtudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner