Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 06. mars 2015 15:00
Magnús Már Einarsson
Marko Pavlov í Selfoss (Staðfest)
Marko Pavlov.
Marko Pavlov.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn Marko Pavlov hefur gengið til liðs við Selfyssinga. Þessi 26 ára gamli leikmaður spilaði ekkert síðastliðið sumar en árið 2013 hjálpaði hann Víkingi að komast upp í Pepsi-deildina.

Marko á að baki landsleiki fyrir U17 og U19 ára landslið Íslands auk þess að hafa leikið fyrir U21 árs landslið Makedóníu.

Marko er uppalinn í Stjörnunni en á ferli sínum hefur hann einnig verið á mála hjá Caen í Frakklandi og Real Betis og Real Mallorca á Spáni.

Þá spilaði hann einnig með Breiðabliki í Pepsi-deildinni sumarið 2011.

Selfyssingar eru að safna liði fyrir næsta tímabil en Kristján Atli Marteinsson er einnig kominn til félagsins frá Fjarðabyggð.
Athugasemdir
banner
banner