Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
   mán 06. maí 2024 09:32
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu rauða spjaldið sem markvörður KR fékk og vakti furðu
Guy Smit í leiknum í gær.
Guy Smit í leiknum í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Guy Smit markvörður KR fékk tvö gul spjöld með stuttu millibili, og þar með rautt, í 1-1 jafntefli gegn KA í gær.

Hollendingurinn hefur verið í brasi í síðustu leikjum Vesturbæjarliðsins og fékk gult spjald í gær fyrir að brjóta af sér fyrir utan teig.

KA-menn voru ekki sáttir þar sem þeir vildu að Twana Khalid Ahmed dómari myndi láta leikinn ganga áfram því Ásgeir Sigurgeirsson stóð upp og markið var autt. Í það minnsta vildu þeir annan lit á spjaldinu fyrst flautað var.

Stuttu seinna fékk Guy svo sitt annað gula spjald fyrir leiktöf, þrátt fyrir að hafa ekki tekið óvenku langan tíma í að taka markspyrnu.

„Við erum búnir að horfa aftur á þetta og þetta eru átta sekúndur sem að Smit tók sér í að taka spyrnuna. Ég hef aldrei á öllum mínum þjálfaraferli, eða sem knattspyrnuáhugamaður, séð markmann fá gult spjald fyrir að taka sér átta sekúndur í að taka markspyrnu," sagði Gregg Ryder þjálfari KR eftir leik.

KA nýtti sér liðsmuninn til að jafna leikinn í 1-1 og urðu það lokatölur.

Vísir hefur birt myndband af atvikinu og má sjá það hér að neðan.

Lestu um leikinn: KA 1 -  1 KR


Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 6 5 0 1 14 - 6 +8 15
2.    Breiðablik 6 4 0 2 15 - 9 +6 12
3.    FH 6 4 0 2 10 - 9 +1 12
4.    Valur 6 3 2 1 9 - 5 +4 11
5.    Fram 6 3 2 1 7 - 4 +3 11
6.    Stjarnan 6 3 1 2 8 - 7 +1 10
7.    ÍA 6 3 0 3 14 - 9 +5 9
8.    KR 6 2 1 3 11 - 11 0 7
9.    HK 6 2 1 3 6 - 10 -4 7
10.    Vestri 6 2 0 4 4 - 12 -8 6
11.    KA 6 0 2 4 7 - 13 -6 2
12.    Fylkir 6 0 1 5 5 - 15 -10 1
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner