Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
banner
   þri 07. maí 2024 21:30
Ívan Guðjón Baldursson
„Leikmenn Man Utd eiga ekki skilið þennan stuðning"
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Fótboltasérfræðingurinn Jamie Carragher hefur verið duglegur að tjá sig um hrikalegt gengi Manchester United að undanförnu og þá sérstaklega eftir 4-0 tap á útivelli gegn Crystal Palace í gærkvöldi.

Carragher var að fara yfir ýmis atvik úr leiknum að leikslokum og var Ashley Young, fyrrum leikmaður Man Utd og núverandi leikmaður Everton, með í sjónvarpsverinu hjá Sky.

„Þetta er algjörlega stórkostlegur stuðningur frá stuðningsmönnum Manchester United útaf því að leikmennirnir eiga þetta ekki skilið. Leikmennirnir gætu gengið af velli og hugsað með sér að þetta hafi ekki verið svo slæmt útaf öllum þessum stuðningi," sagði Carragher og hélt áfram að hrósa stuðningsfólki Rauðu djöflanna í hástert áður en Ashley Young tók undir.

„Stuðningsmenn félagsins hafa verið stórkostlegir í gegnum árin. Þegar það er erfiður kafli hjá félaginu þá standa þeir alltaf við bakið á leikmönnum. Miðað við frammistöðuna hjá Man Utd bjóst maður við að stuðningsmenn væru löngu búnir að yfirgefa völlinn, en þeir urðu eftir og sungu til leiksloka.

„Þetta er það sem félagið snýst um, en stuðningsmenn vilja sjá miklu meira heldur en þetta."


Jamie Carragher and Ashley Young give credit to the fantastic away support from Man Utd
byu/dylan103906 insoccer

Athugasemdir
banner
banner