Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 07. júlí 2015 06:30
Daníel Freyr Jónsson
Framherji Napoli á leiðinni til Udinese
Duvan Zapata.
Duvan Zapata.
Mynd: Getty Images
Framherjinn Duvan Zapata, leikmaður Napoli, er nálægt því að ganga frá tveggja ára lánssamning við Udinese.

Frá þessu greina ítalskir fjölmiðlar, en félagaskiptin eru hluti af tilraun Napoli til að landa brasilíska miðjumanninum Allan frá Udinese.

Zapata er 24 ára gamall kólumbískur landsliðsmaður sem gekk í raðir Napoli fyrir tveimur árum. Hefur hann skorað 11 mörk í 33 deildarleikjum með liðinu á þessum tveimur tímabilum. Hann skoraði hinsvegar sex mörk í einungis átta leikjum í Evrópudeildinni í vetur.

Félögin tvö hafa átt í viðræðum undanfarið varðandi hugsanleg kaup Napoli á Allan, en hann er 24 ára gamall og hefur spilað yfir 100 leiki með Udinese á síðustu þremur leiktíðum.
Athugasemdir
banner