Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
banner
   mán 08. janúar 2018 13:41
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu frá fyrsta vinnudegi Coutinho hjá Barcelona
Coutinho dagurinn haldinn hátíðlegur í Barcelona.
Coutinho dagurinn haldinn hátíðlegur í Barcelona.
Mynd: Getty Images
Mynd: Twitter
Það er engu til sparað hjá Barcelona þegar kemur að því að kynna nýjasta leikmann liðsins, Philippe Coutinho, sem keyptur var frá Liverpool á 142 milljónir punda.

Barcelona hefur blásið til Coutinho dags, með kassamerkinu #CoutinhoDay á Twitter, og það hefur verið nóg að gera í kynningarstarfsseminni hjá Brasilíumanninum.

Hann hefur verið að skoða aðstæður og heimsótt bæði verslun og safn Barcelona. Þá hefur hann rætt við aðdáendur og haldið bolta á lofti á Nývangi eins og tíðkast þegar nýr leikmaður mætir til leiks.

„Ég er að lifa drauminn. Þakka ykkur öllum fyrir að koma. Það er erfit að útskýra það en öll fjölskylda mín er mætt hingað til að lifa drauminn," sagði Coutinho við aðdáendur.

Coutinho hefur skiljanlega brosað út að eyrum en það verður þó einhver bið eftir því að stuðningsmenn Barcelona fái að sjá hann á keppnisvellinum.

Hér að neðan má sjá frá fyrsta vinnudegi Coutinho hjá toppliði spænsku deildarinnar.


Sjáðu myndband frá fyrsta degi Coutinho:

Athugasemdir
banner