Margir frá Fjölni
Fimm umferðum er lokið í Bestu deildinni og Leifur Grímsson birti í gær áhugaverða tölfræði á X reikningi sínum.
Þar tekur hann saman hvar leikmennirnir 194 sem hafa spilað í deildinni til þessa eru uppaldir.
Þar tekur hann saman hvar leikmennirnir 194 sem hafa spilað í deildinni til þessa eru uppaldir.
Flestir leikmenn í deildinni eru uppaldir hjá Breiðabliki eða 22 af þeim. Fylkir og FH eru í 2. og 3. sæti með 15 leikmenn og HK er svo í 4. sæti með 14.
Athygli vekur að Fjölnir, sem er í Lengjudeildinni, er í 5. sæti því 11 leikmenn sem spilað hafa í Bestu deildinni á tímabilinu eru uppaldir hjá Fjölni.
Valur á einungis 1 uppalinn leikmann í deildinni en það er Birkir Már Sævarsson.
Fylkir er það lið þar sem uppaldir leikmenn hjá félaginu hafa spilað flestar mínútur til þessa á tímabilinu.
„Langoftast er þetta augljóst en annars er þriðji og annar flokkur viðmiðið," svaraði Leifur þegar hann var spurður út hver skilgreining hans á uppeldisfélagi væri.
194 íslenskir leikmenn hafa spilað í Bestu deild karla þar sem af er tímabilinu og koma þeir frá 32 uppeldisklúbbum. Enn á Breiðablik flesta. Tæplega fertugur Birkir Már heldur Val á þessum lista. pic.twitter.com/T26Cgx3dAz
— Leifur Grímsson (@lgrims) May 7, 2024
Athugasemdir