Sammy Ameobi, kantmaður Newcastle United, verður á láni hjá Aroni Einari Gunnarssyni og félögum í Cardiff City á tímabilinu.
Ameobi er 23 ára gamall og á 53 deildarleiki að baki fyrir Newcastle.
Ameobi er 23 ára gamall og á 53 deildarleiki að baki fyrir Newcastle.
Cardiff endaði í 11. sæti ensku Championship deildarinnar á síðasta tímabili og er Ameobi góð viðbót til að breikka út leikmannahópinn.
Ameobi hefur einu sinni áður verið lánaður út, þá lék hann tíu leiki á láni hjá Middlesbrough og gerði eitt mark.
Athugasemdir