Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
banner
   sun 08. október 2023 17:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Dóri Árna ráðinn þjálfari Breiðabliks (Staðfest) - Þriggja ára samningur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Árnason hefur verið ráðinn sem þjálfari meistaraflokks karla hjá Breiðabliki til næstu þriggja ára. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.

Halldór tekur við af Óskari Hrafni Þorvaldssyni sem var látinn fara í dag. Halldór var aðstoðarþjálfari í þjálfaratíð Óskars og unnu þeir áður saman hjá Gróttu.

Þetta er annað aðalþjálfarastarf Halldórs á hans ferli en hann var þjálfari KV á árunum 2012-14.

Tilkynning félagsins:
Halldór Árnason ráðinn þjálfari meistaraflokks karla
Halldór Árnason hefur verið ráðinn sem þjálfari meistaraflokk karla hjá Breiðabliki til næstu þriggja ára. Halldór hefur starfað sem aðstoðarþjálfari meistaraflokksins síðan 2019 og verið mikilvægur hluti af teyminu í kringum meistaraflokk karla og þeim árangri sem liðið hefur náð.

„Ég er afar stoltur af traustinu sem Breiðablik sýnir mér til að stýra meistaraflokki karla og halda áfram að byggja upp það frábæra starf sem hér er í gangi. Ég tek við mjög góðu búi og frábæru liði af Óskari og hlakka til að takast á við þau spennandi og krefjandi verkefni sem okkar bíða" segir Halldór Árnason nýráðinn þjálfari Breiðabliks.

Áður en Halldór kom til Breiðabliks þjálfaði hann meðal annars hjá Gróttu, KR og Stjörnunni.

Með ráðningu Halldórs verður haldið áfram þeirri uppbyggingu og framþróun sem við viljum hafa á öllum sviðum í Smáranum og býður Knattspyrnudeild Breiðabliks Halldór velkominn til starfa sem aðalþjálfari meistaraflokks karla.
Athugasemdir
banner
banner
banner