Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 09. október 2015 09:22
Magnús Már Einarsson
Klopp: Ég er sá venjulegi
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, sló á létta strengi á fréttamannafundi í dag þegar hann var kynntur sem stjóri Liverpool.

Jose Mourino, stjóri Chelsea, kallaði sjálfan sinn þann sérstaka eða the special one þegar hann mætti í enska boltann. Klopp var beðinn um að lýsa sjálfum sér.

„Ég er sá venjulegi (the normal one)," sagði Klopp og uppskar hlátur frá fréttamönnum.

„Ég vil ekki lýsa sjálfum mér. Ég er mjög venjulegur náungi. Ég fékk frábært tækifæri til að vinna hjá Dortmund í sjö ár og núna er ég hér."

„Fólk hefur sagt mér mikið um enska fjölmiðla. Það er undir ykkur komið að sýna að þið eruð allir lygarar."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner