Albert Bunjaki, landsliðsþjálfari Kosóvó, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Íslandi klukkan 18:45. Bunjaki er að stýra liði Kósóvó í síðasta skipti í dag en hann er að hætta störfum eftir undankeppnina.
Kosóvó hefur tapað átta leikjum í röð í undankeppninni en eina stig liðsins til þessa kom gegn Finnum í fyrsta leik.
Kosóvó hefur tapað átta leikjum í röð í undankeppninni en eina stig liðsins til þessa kom gegn Finnum í fyrsta leik.
Bunjaki gerir þrjár breytingar á liðinu síðan í 2-0 tapinu gegn Úkraínu á föstudaginn.
Alban Pnishi (Grasshopper), Valon Berisha (Red Bull Salzburg) og Atdhe Nuhiu (Sheffield Wednesday) koma inn í liðið. Tveir þeirra síðarnefndu er á meðal betri leikmanna í liðinu. Hekuran Kryeziu er í leikbanni í dag og þeir Vedat Muriqi og Besar Musolli detta einnig úr liðinu.
Fyrirliði Kósóvó er markvörðurinn Samir Ujkani en hann spilar með Cremonese í Serie B á Ítalíu. Ujkani var áður á mála hjá Palermo og Genoa í Serie A.
Athugasemdir