Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 09. desember 2017 10:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fantasy um helgina - Grannaslagir
Stuttur tími til stefnu!
Liverpool mætir nágrönnum sínum í Everton.
Liverpool mætir nágrönnum sínum í Everton.
Mynd: Getty Images
Það er frábærir leikir í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Í dag eru sjö leikir og á morgun er ofursunnudagur!

Í leiðinni fer 15. umferðin í Fantasy deild American bar og Fótbolta.net í gang.

Fótboltaáhugamenn beina sjónum sínum að morgundeginum þegar Liverpool og Everton mætast annars vegar og Manchester United og Manchester City hins vegar.

Það er tæpur klukkutími í að markaðurinn loki.

Mörg þúsund lið hafa tekið þátt í Fantasy leikjunum hér á Fótbolta.net undanfarin ár og nú förum við á fullt í samstarfi við American Bar.

Í hverjum mánuði verða veitt verðlaun fyrir besta liðið hverju sinni og sigurvegarinn fær veglega úttekt á American Bar en þar er hægt að sjá leiki ensku úrvalsdeildarinnar í allan vetur.

Við byrjuðum að telja frá 2. umferð en það er enn hægt að skrá sig.

Smelltu hér til að skrá þig í American Bar Fantasy deildina.

Kóðinn til að skrá sig er: 1694347-644884
Athugasemdir
banner
banner