Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 10. janúar 2018 21:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Deildabikarinn: Aftur jafntefli hjá Chelsea og Arsenal
Myndbandsdómgæsla notuð
Mynd: Getty Images
Chelsea 0 - 0 Arsenal

Mörkin létu ekki sjá sig þegar nágrannarnir Chelsea og Arsenal mættust í undanúrslitum enska deildabikarsins í kvöld.

Arsene Wenger tók út leikbann í kvöld og sat með blaðamönnunum í blaðamannastúkunni á Stamford Bridge.

Þegar þessi lið mættust fyrir nokkrum dögum varð úr mikil skemmtun en ekki er hægt að segja það sama um leikinn í kvöld, þó úrslitin hafi verið þau sömu: jafntefli.

Leikurinn endaði markalaus en það sem þótti athyglisverðast í leiknum var þegar myndbandsdómgæsla var notuð. Þótti hún heppnast nokkuð vel í kvöld.

Seinni leikurinn verður eftir tvær vikur á Emirates-leikvanginum.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner