Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 10. desember 2017 20:28
Ívan Guðjón Baldursson
Myndbönd: Klopp sár og reiður að leikslokum
Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp og lærisveinar hans í Liverpool gerðu 1-1 jafntefli við Everton á Anfield Road í dag.

Liðin mættust í miklum nágranna- og erkifjendaslag og gerði Everton jöfnunarmarkið úr vítaspyrnu sem Klopp var ósáttur með.

Klopp var reiður og sár eftir leikinn og er hægt að sjá ansi skrautleg myndbönd af honum hér fyrir neðan, þar sem enginn virðist vera sammála honum um vítaspyrnudóminn.

„Hann brýtur ekki af sér, þú sást hvernig hann var með höndina," sagði Klopp í uppnámi.

„Ef þér finnst þetta víti þá máttu segja það. Að þínu mati er þetta vítaspyrna. Við getum hætt þessu viðtali því ég vil bara tala við fólk sem hefur eitthvað vit á fótbolta."

Það var svo á fréttamannafundinum eftir leikinn sem Klopp spurði allan salinn hverjir töldu að þetta hafi átt að vera vítaspyrna. Hann varð nokkuð hissa þegar allir í salnum réttu upp hendur og voru sammála dómaranum.








Athugasemdir
banner
banner
banner