Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 11. janúar 2017 21:13
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Suarez með 100 mörk í 120 leikjum fyrir Barcelona!
Suarez fagnar 100. marki sínu fyrir Barcelona
Suarez fagnar 100. marki sínu fyrir Barcelona
Mynd: Getty Images
Luis Suarez er búinn að koma Barcelona yfir gegn Athletic Bilbao í spænska bikarnum og var það hans 100. mark fyrir Barcelona, í 120 leikjum!

Luis Suarez gekk til liðs við Barcelona árið 2014 frá Liverpool og hefur hann heldur betur slegið í gegn.

Suarez hefur skoraði 7 þrennur, og skorað aðeins úr fjórum vítaspyrnum. Þá hefur hann einnig gefið 49 stoðsendingar. Hann hefur því komið að 149 mörkum í 120 leikjum.

Það tók Lionel Messi 188 leiki til þess að skora 100 mörk fyrir Barcelona og Samuel Eto'o gerði það sama í 155 leikjum.

Ótrúleg tölfræði hjá þessum frábæra leikmanni!



Athugasemdir
banner
banner